föstudagur, mars 21

Þá held ég að maður getið tilkynnt hér að Patrick og ég eigum von á barni í endaðan september :) Við erum rosa ánægð og fórum í fyrsta sónarinn um daginn sem var rosa gaman. Fannst alveg ótrúlegt hvað maður gat séð. Ég setti inn mynd hérna af litla krílinu, en sónarinn sjálfur var nú samt betri og skírari heldur en myndin þar sem maður gat séð alskonar hreyfingar og hjartsláttinn. Barnið var spriklandi og opnandi muninn af og til. Mjög gaman að sjá þetta. Það kom allt vel út úr sónarnum en við þurfum að bíða eftir að fá út úr hnakkþykktarmælingunni en ég er viss um að það komi allt út í fínu lagi líka.


Já svo er páskahelgi hér eins og annars staðar. Við ætlum bara að eyða helginni mest hér heima. Baðherbergið okkar er alveg að verða tilbúið og við ætlum að mála það. Það verður svo klárað á þriðjudaginn. Það á eftir að setja sturtuhausinn og sturtuglerið á baðið og svona smá smotterí. Ég lofa að setja myndir af því hér mjög fljótlega.

Svo er líka brúðkaupsafmælið okkar á Páskadag :) 6 ára afmæli. Ætlum nú ekki að gera mikið nema að fara út að borða á laugardeginum þar sem ég er svo að plana að elda páskasteik á sunnudaginn. Við förum nú svo og hittum fjölskylduna hans Patricks á sunnudaginn. Það er siður að hittast öll í garði og borða hádegismat og páskaegg.

G L E Ð I L E G A P Á S K A!

8 ummæli:

Aldan sagði...

Vá, glæsilegt :) Innilega til hamingju með tilvonandi erfinga :)

Nafnlaus sagði...

Sæl frænka,

Innilega til hamingju! Hlakka til að fylgjast með hérna fyrst ég fann þig :)

Kveðja,
Ása Björg frænka

Nafnlaus sagði...

æ en æðislegt : ) Innilega til hamingju, þú verður að leyfa manni að fylgjast með óléttunni og vera dugleg að setja inn myndir og sona þegar á líður, líka fyrst þú ert sona langt í burtu frá manni að þá verður maður að fá að fylgjast með úr fjarlægð : )

Geggjað,

Kv. Sólveig.

Nafnlaus sagði...

Hæ og innilega til hamingju með litla bumbubúann.
Gangi ykkur rosalega vel

kv. Þóra

Nafnlaus sagði...

Hæhæ

Innilegar hamingjuóskir.

kv. Hanna :)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með bumbubúann ;)
hlakka til að heyra meira og sjá fleiri myndir :)
kv Arna

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju elsku Olga og Patrick með litla barnið!
Kærar kveðjur,

Helga og Keith.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju!!! Varð nú að kíkja um leið á bloggið þitt þegar ég sá að þú hefðir litið inn á Barnaland. En spennandi að búa í Ástralíu!!! Gefðu mér endilega lykilorðið inn á þína síðu á Barnalandi. Rosa gaman að þú skildir "rekast" á mig.
Kveðjur frá Selmu Björk í Svíþjóð