þriðjudagur, janúar 1


Ég óska öllum Gleðilegs Nýs árs og takk fyrir allt liðið og gott. Vona að 2008 verði gott ár fyrir alla.

Árið 2007 í hnotskurn:

  • JANÚAR - Skruppum til Melbourne á Ástralíudegi og fengum þær fréttir að Toni og Carel ættu von á barni.
  • FEBRÚAR - Fórum í húsaleiðangur og fundum lítin sætan kofa í Ascot Street.
  • MARS - Keyptum litla sæta kofan og fluttum á Ascot Street.
  • APRÍL - Páskar
  • MAÍ - Ballarat veturinn byrjar
  • JÚNÍ - Erla og Tinna komu í heimsókn til okkar. Toni og Carel eignuðust litla stelpu, Ruby.
  • JÚLÍ - Erla og Tinna ennþá hjá mér og við fórum meðal annars til QLD.
  • ÁGÚST - Ég varð 28 ára.
  • SEPTEMBER - Frekar óviðburðaríkur mánuður. Fór mest í vinnu, þrif og bókalestur.
  • OKTÓBER - Nokkur partý og svo kom fyrsti almenni sumardagurinn.
  • NÓVEMBER - Jólagjafainnkaup á fullu og Tinna tilkynnir að hún sé að koma í aðra heimsókn til mín. Fréttum að Magnús frændi og Ingibjörg eigi von á barni.
  • DESEMBER - Húsið hennar Maureen selt og hún flutt á elliheimili. Ástralía fékk nýjan forsætisráðherra og nýja vinstri stjórn. Fullt af jólaboðum og jólagjöfum. Frétti svo að annar frændi minn hann Gummi Snorri og kærastan hans eigi líka von á barni í vor. Árinu lauk svo hjá okkur í litlum bæ sem heitir Castlemaine með flugeldum og kampavíni.
-->>> 2008 HERE I COME <<<--

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt Nýtt ár og takk fyrir öll þau gömlu og skemmtilegu :)
Bestu kveðjur frá okkur í Árósum
Ásta Björk & Ívar

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt nýtt ár Olga mín ; )

Sólveig.