mánudagur, júlí 30

Fór á IBM ballið um helgina. Þetta var stór dagur og mikið drukkið. Allt of mikið drukkið. Skemmti mér nú samt vel en ekki eins vel daginn eftir.

Svo kíktum við aðeins í búðir á sunnudeginum og keyptum okkur stofuborð. Sem var nú ekki seinna vænna. Ég breytti svo öðru svefnherberginu okkar í hálfgerðan fataskáp. Enda komin með nóg af að hafa helminginn af fötunum mínum í ferðatösku.

Já svoleiðis var nú helgin.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með fataherbergið :)

Nafnlaus sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!!
Vonandi áttu yndislegan dag,með fullt af vinum,ættingjum og ennþá meira af gjöfum.
Farðu vel með þig kæra vinkona.
Svo máttu alveg koma í heimsókn til Íslands sem fyrst.
Kveðja
Rebekka (Hagkaupsgellan)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið gamla! :)

Njóttu dagsins og hafðu það gott!

------------PARTY ON---------------

Bkv.
Magga

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið aftur : )

Kv. Sólveig.