þriðjudagur, mars 14

Sá þetta hjá Öldu og Hönnu:

Hefur þú...

(x) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n úr vinnu
(x) lennt í slagsmálum...
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhverns sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) skorið þig viljandi
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhverns akkúrat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í tískuleik (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmanna
( ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta - ég hef aldrei verið á landinu þegar það er jarðskjálfti. Mjög svekkjandi.
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur - hef aldrei verið ógnað með byssu en það var brotst inn til okkar einu sinni og svo stal einhver veskinu mínu líka.
(x) verið miskilin/n
(x) klappað geit/hreindýri/kengúru - (3/3)
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunarskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi -nokkurs konar bílslys. Bíllin snérist í nokkra hringi og út af veginum. Munaði litlu að hann færi á ljósastaur (nei ég var ekki að keyra)
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passir ekki inní/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni af glæp
(x) efast um að hjartað segji þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(--) leikið þér berfætt/ur í drullunni -það getur vel verið að ég hafi gert það þegar ég var lítil.
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófaleik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna) - ég hef keypt McDonalds í Englandi fyrir bara smáklink. Þar kosta líka Ostborgari bara 60p.
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(--) skrifað bréf til jólasveinsins - ég bara man ekki hvort ég einhverntíman skrifaði bréf til hans.
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk - nei og held ég muni ekkert gera það á næstunni
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) gert þig að þvílíku fífli fyrir framan fullt af fólki
(x) kysst einhvern að sama kyni - bara í gríni
( ) farið nakin/n í sund
( ) rennt þér á grasinu á snjóþotu
( ) verið sett í straff
(x) logið fyrir vini þína
( ) liðið yfir þig
(x) fengið sms frá einhverjum sem þú veist ekki hver er og byrjað að spjalla við manneskjuna
(x) eyðilagt eitthvað sem vinur þinn átti - óvart


Hef ekkert annað að segja í bili.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Get a job, eða eitthvað að gera...